152. löggjafarþing — 14. fundur,  21. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[17:22]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar hugleiðingar. Það er alveg ljóst að einhver stærsti drifkraftur verðbólgunnar eru eignaverðshækkanir, hækkanir á húsnæðisverði. Þetta er að einhverju leyti afleiðing — ja, ekkert að einhverju leyti, þetta er að langstærstu leyti afleiðingin af snörpum vaxtalækkunum í Covid sem ekki hefðu verið jafn snarpar ef t.d. hið opinbera hefði brugðist fyrr við með sterkum hagstjórnaraðgerðum til að verja fólk og fyrirtæki.

Nú styttist í kjaraviðræður og Alþýðusamband Íslands hefur verið mjög skýrt með það að verkalýðshreyfingin muni leggja það svolítið til grundvallar í sinni kröfugerð hvað verður gert í tilfærslukerfunum þegar kemur að barnabótum og öðru, og svo auðvitað þegar kemur að húsnæðismálum. Svona til lengri tíma held ég að sé alveg ljóst að einhver gagnlegasta aðgerð sem við, hið opinbera, getum farið í til að dempa húsnæðismarkaðinn og þar af leiðandi draga úr verðbólgu til lengri tíma, sé að styðja betur við almenna íbúðakerfið þar sem við erum í rauninni að endurreisa að einhverju leyti gamla verkamannabústaðakerfið. Það er ofboðslega góð leið til að auka framboð af hagkvæmu íbúðarhúsnæði fyrir tekjulægri hópa. Ég held við þurfum líka að gera það fyrir millitekjuhópa í ríkara mæli. En ég held að það sé algjörlega rakið mál að setja aukin framlög í inn í almenna íbúðakerfið. Það er auðvitað dapurlegt að ekkert slíkt sé uppi á teningnum, hvorki í fjáraukalögunum né fjárlögum næsta árs.