fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Við munum auðvitað styðja þessa breytingartillögu sem kemur til vegna vaktaálags á lögreglumenn. En ég vek athygli á að árum saman hefur löggæslan á Íslandi verið vanfjármögnuð og það er óheppilegt að við þurfum að standa í því að setja fjármuni í fjárauka til að koma til móts við langþreytta lögreglumenn um allt land sem eru undir ómennsku álagi við að gæta hagsmuna okkar og öryggis. Það væri gott ef samfella væri í störfunum í dómsmálaráðuneytinu, hjá yfirmanni löggæslumála, að ekki væri t.d. sífellt verið að skipta um ráðherra málaflokksins. Það væri gott ef innviðir eins og löggæsla væru tryggðir á Íslandi.