fjárlög 2022.
Forseti. Mig langar til að spyrja formann fjárlaganefndar aðeins um breytingartillögur meiri hluta, ekki ríkisstjórnarinnar heldur meiri hluta, af því að ég sé ekki mjög skýrt í nefndarálitinu þær breytingartillögur sem lagðar voru fyrir nefndina. Listann með þeim er að sjá í nefndarálitinu mínu, t.d. eins og eins og Bjarmahlíð 7 milljónir, Tækniminjasafn Austurlands 15 milljónir, Svartárkot 6 milljónir; samtíningur af fjárheimildum héðan og þaðan. Allt eru það örugglega mjög fín verkefni en ég pæli aðeins í gagnsæinu hvað nefndarálitið varðar og hvort upphæðirnar sem hér eru séu skýrar, hvert fjárheimildirnar eru að fara. Er það ekki enn fremur vantrauststillaga á ráðherra þegar verið er að leggja til 1, 5, 6 eða 10 milljónir í einstök verkefni fram og til baka? Eins og ráðherrarnir sem eru með tugi milljarða jafnvel á málefnasviðum sínum geti ekki dekkað þessa samninga eða hugmyndir. Ég skil ekki svona því að þetta er gamla fyrirkomulagið á því hvernig við höfðum lög um fjárlögin.
Nú eru komin í lög um opinber fjármál þar sem ráðherra er heimilt að veita einstakra styrki og það er háð ákveðnu jafnræði í umsóknum o.s.frv. Það þarf að skila skýrslu til að útskýra hvernig farið er með fjárheimildir. Ekkert svoleiðis er í umsagnarferli til Alþingis. Það er enginn stór takki á vefsíðu þingsins sem segir: Sækja um styrk frá Alþingi, sem er með einhverju gagnsæju formi og aðgengilegu. Það var fólk sem hafði samband við mig þegar það sá allar þessar einstöku fjárbeiðnir og spurði: Bíddu, fyrirgefðu, af hverju var ég ekki látin vita (Forseti hringir.) að ég gæti sótt um styrk hjá Alþingi eins og allir hinir sem eru að fá styrki hérna? Það er 87,8% úthlutunarhlutfall (Forseti hringir.) hjá fjárlaganefnd þingsins. Það væri gott ef það væri svoleiðis í öðrum sjóðum.