fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Í þessu fjárlagafrumvarpi er fjárveiting sem hefur venjulega verið veitt til að mæta aukinni þjónustuþyngd vegna öldrunar þjóðarinnar, lýðfræðilegra breytinga o.s.frv. Hún er látin falla niður og fer bara í að mæta kostnaði vegna betri vaktavinnutíma. Um leið er aðhaldskrafa sett á sjúkrahúsin. Þetta eru sýnist mér um 500 millj. kr. Mig langar bara að biðja hv. formann fjárlaganefndar um að útskýra fyrir okkur hérna í þessum sal og fyrir þjóðinni allri hvernig hún sér eiginlega fyrir sér að Landspítali – háskólasjúkrahús eigi að geta brúað þetta 1.800 milljóna gat á næsta ári. Stjórnendur spítalans segja að þetta muni óhjákvæmilega bitna á þjónustu sem spítalinn veitir. Er formaður fjárlaganefndar ósammála því? Er hún með einhverja lausn á þessu fyrir stjórnendur? Og ef ekki, hvaða þjónusta telur formaður fjárlaganefndar réttast að sé skert? Hvernig á spítalinn að leysa þetta og hvers vegna hefur ekki verið brugðist við þeim sjónarmiðum sem koma fram í umsögn Landspítalans og voru vel rökstudd? Það væri gott að fá svör við þessu.