fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Eins og ég sagði í ræðu minni og vil rifja upp þá hefur árleg hækkun þrátt fyrir allt verið talsverð til Landspítalans og að raungildi nemur hún í kringum 8,6 milljörðum á tímabilinu 2017–2021. Rekstrargrunnur spítalans er þar af leiðandi orðinn 12% hærri að raungildi en árið 2017. Hv. þingmaður hefur kannski ekki tekið eftir því í ræðu minni en ég sagði að við hefðum fengið upplýsingar um að það væru til lyf hjá heilbrigðisráðuneytinu, meira en talið hafði verið. Við þurfum hins vegar að kanna það af því að við vorum búin að fá upplýsingar sem við teljum ekki vera þær sömu og við erum með í höndunum í dag, þannig að það eina sem ég ætla að segja við hv. þingmann er að við ætlum að skoða þetta mál á milli umræðna. Við munum taka það til skoðunar og sjá hvort það er raunverulega fjármagn sem heilbrigðisráðuneytið hefur sjálft eða hvort við þurfum að finna út úr því í nefndinni að öðru leyti.