152. löggjafarþing — 15. fundur,  21. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:30]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessi svör. Það væri gott að fá þá staðfestingu á því frá henni í næstu ræðu að ef þessar heimildir sem hún minntist á og bíða ónýttar duga ekki fyrir reiknuðum raunvexti þá verði þeim fjármunum bætt inn í milli umræðna. Það væri ofboðslega gott fyrir okkur að fá staðfestingu á því. Það gengur auðvitað ekki að ekki sé hægt að fjármagna almennilega úrræði sem eiga að draga úr álagi á heilbrigðisstofnunum án þess að láta svo bara sama fólkið, sem á að njóta góðs af því úrræði, hlaupa hraðar til að mæta niðurskurði einhvers staðar annars staðar. Það gengur ekki að vera að færa álagið bara á milli staða. Við hljótum að vilja bæta rekstrargrunn spítalans til framtíðar og við getum ekki alltaf verið með þessar hörðu aðhaldskröfur og fjársveltistefnu. Ég býst ekki við því að formaður fjárlaganefndar og við hér á Alþingi getum einhvern veginn stöðvað öldrun þjóðarinnar eða stöðvað fólksfjölgun í landinu. Varla viljum við það.