fjárlög 2022.
Herra forseti. Ég er að fara að flytja nefndarálit mitt í fjárlagaumræðunni og ég bað um tvo ráðherra til að spjalla við vegna skringilegra fjárlaga og ýmislegs svoleiðis. En mér er tjáð að fyrst það er ekki samkomulag um umræður þá mæti ráðherrarnir ekki, sem mér finnst rosalega skrýtið því að þetta er bara venjuleg umræða; 30 mín. framsaga, ræður o.s.frv. Það er ekkert óvenjulegt að við fáum að tala hérna um fjárlög. En af því að það er ekki eitthvert samkomulag — ég skil þetta ekki. Getur einhver útskýrt það fyrir mér, virðulegi forseti, að ef það er ekki samningur um lok umræðunnar þá einhvern veginn mæta ráðherrar ekki? Hefur það gerst áður? Er það alvanalegt?