fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Ég tek eftir því að í annað sinn í þessari fjárlagaumræðu er ekki einn einasti stjórnarliði á mælendaskrá. Mögulega er það vegna þess að umræðan byrjar klukkan níu að kvöldi að stjórnarliðar sýna þessari umræðu um sín eigin fjárlög engan áhuga og taka ekki þátt. Ekki veit ég hvaða önnur ástæða gæti legið að baki því að ekki einn einasti stjórnarliði, utan flutningsmanns nefndarálits, sem neyðist auðvitað til þess að koma hérna upp eins og síðast, tekur þátt í þessari umræðu.
Hv. þm. Vilhjálmur Árnason talaði um að þetta væri nú allt saman fyrirséð. Miðað við reynslu síðustu tíu ára þá er það ekki fyrirséð að 2. umr. um fjárlög eigi sér stað svona seint. Það hefur bara ekki gerst síðustu tíu ár. Við höfum alltaf fengið að ræða þetta mál í björtu þó að við séum komin fram á daginn fyrir Þorlák. Þannig að þetta er ekki fyrirséð, virðulegur forseti, og þetta er ekki ásættanlegt. (BLG: Heyr, heyr.)