152. löggjafarþing — 15. fundur,  21. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:42]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það er alveg rétt sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason sagði, að það er einmitt ekkert samkomulag um þessa umræðu. Það hefur ekki verið reynt neitt í dag af hálfu stjórnarliða að ná einhverju samkomulagi um þessa umræðu. Það virðist vera sem stjórnarliðar séu vant við látnir við annað en að ná samkomulagi við stjórnarandstöðu um þessa umræðu. Ég held þeim sé alveg sama af því að þau eru ekki hér, eða fæst þeirra. Þetta er lýðræðið. Hér er þessi umræða sem á sér stað um þetta mikilvægasta mál ríkisstjórnarinnar. Það er ríkisstjórnin og það eru stjórnarflokkarnir þrír sem bera ábyrgð á því að við séum að afgreiða þetta núna. Þau tóku ákvörðun um að hafa kosningar í lok september. Þau tóku ákvörðun um að kalla þing ekki saman eftir kosningar. Þau tóku ákvörðun um að draga það í tvo mánuði eftir kosningar að kalla saman þingið til að vinna þetta nauðsynlega mál. Þau bera ábyrgð á því að við erum hér að keyra inn í nóttina þar sem engum ráðherra dettur í hug að vera í þessari mikilvægu umræðu. Hvar eru ráðherrarnir? Hvar eru stjórnarliðar til að taka þátt í þessari umræðu?