152. löggjafarþing — 15. fundur,  21. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:44]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram. Þetta er svolítið í stíl við það sem við höfum séð framan af á þessu þingi, sem er gríðarlegt virðingarleysi meiri hlutans gagnvart minni hlutanum. Það eru sannarlega mikil vonbrigði fyrir okkur, nýja þingmenn, að verða vitni að þessum vinnubrögðum. Það er alveg ljóst að þessi umræða, bara í eðli sínu, og sú staðreynd að hún skuli eiga sér stað 21. desember, er á ábyrgð meiri hlutans. Það er á ábyrgð stjórnarflokkanna, eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir fór yfir hér áðan, að kosningarnar hafi verið svo seint. Það er á þeirra ábyrgð hve seint þingið kemur saman og það er á þeirra ábyrgð að við ræðum þetta svo seint, klukkan er 9 að kvöldi og við erum að fara að ræða þetta. Ég fer fram á að meiri hlutinn, stjórnarflokkarnir, sýni okkur hinum lágmarksvirðingu í þessu og öðru. Þetta eru ekki boðleg vinnubrögð. Þetta er ekki lýðræðislegt. Þetta er ekki í anda þeirrar lýðræðishefðar sem við höfum hingað til búið við á Íslandi.