152. löggjafarþing — 15. fundur,  21. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:52]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Þessi umræða um fjárlög í skjóli nætur gerir það að verkum að maður fer að velta því fyrir sér hvort þetta sé ákveðið plott hjá stjórninni, að þeir skammist sín hreinlega svo fyrir fjárlögin að þeir vilji bara ræða þau inn í nóttina, gera það í einhverju næturbrölti.

Ég segi fyrir mig að það kæmi mér svo sem ekki á óvart vegna þess að þessi fjárlög eru byggð á gömlu fjárlögunum með smábreytingum og ég held að það sé ekkert til að vera stoltur af yfir höfuð. En þeir segja hérna að vegna þess að það sé ekkert samkomulag um ræðutíma þá þurfi að hafa þetta svona. Ég sé ekki að það hafi neitt með það að gera að byrja umræðuna í björtu. Það hefur ekkert með samkomulag eða neitt að gera, heldur bara vilja ríkisstjórnarinnar varðandi hvenær þessi umræða fer fram. Ég legg til að við frestum henni og byrjum bara þess vegna tíu í fyrramálið. Það væri fínt. (ÞSÆ: Heyr, heyr.)