152. löggjafarþing — 15. fundur,  21. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[21:53]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er sannarlega rétt sem kom fram í máli hv. þm. Vilhjálms Árnasonar hér rétt áðan, það er ekki samkomulag um ræðutímann. Af því er alveg ljóst að í fyrsta lagi er það ekki minni hlutinn sem hefur ekki viljað komast að samkomulagi. Það er meiri hlutinn sem hefur ekki verið reiðubúinn til viðræðna varðandi það. Og það er alveg ljóst að tilgangur þess að halda okkur hérna langt fram eftir kvöldi er ekki sá að ræða fjárlögin heldur að refsa minni hlutanum fyrir að vilja ræða þetta mikilvæga mál. Eins og bent var á hér áðan hefur á undanförnum árum verið jafnvel enn meiri tímapressa í þessu máli, en samt hefur ekki verið talið tilefni til að hefja 2. umr. eftir klukkan átta að kvöldi, eins og gerist hér núna í kvöld. Ég ætla að leyfa mér að telja og vona að fólk hafi einfaldlega ekki alveg áttað sig á því hversu óvenjuleg ráðstöfun þetta er og hversu (Forseti hringir.) lítil réttlæting er fyrir þeirri tímapressu sem við erum í. (Forseti hringir.) Ég óska eftir því að við getum átt þessa umræðu í góðu tómi (Forseti hringir.) þar sem allir geta tekið þátt og gert það af virðingu.