fjárlög 2022.
Forseti sem hér stendur og stýrir fundi upplýsir hér með að hún er tilbúin að gera hlé á þessum fundi sé það ósk þingflokksformanna að koma saman til fundar. Hins vegar veit ég ekki annað en að þingforseti sé enn þá starfandi hvað varðar fjarfundi og því er stjórn þeirra funda ekki á höndum þess forseta sem hér talar. En forseti mun láta á það reyna eftir að umræðu um fundarstjórn lýkur að taka stutt hlé, í tíu mínútur eða svo, og kanna stöðuna. (BLG: Takk fyrir.) En það eru enn fjórir á mælendaskrá um fundarstjórn forseta.