fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög vandaða yfirferð og gott að hlusta á hann af því að hann hefur mjög mikla reynslu af störfum í hv. fjárlaganefnd. Mig langar aðeins að byrja á því að spyrja hv. þingmann, kannski í tilefni af orðum hæstv. fjármálaráðherra hér áðan: Er það tilfinning hv. þingmanns á störfum hans í nefndinni að nefndarfólk stjórnarflokkanna komi að eigin frumkvæði með tillögur að breytingum á fjárlagafrumvarpi eða er það svo að starfsfólk ráðuneytis hæstv. ráðherra mætir á fund hv. fjárlaganefndar með tillögur að breytingum á fjárlagafrumvarpi sem nefndarfólk stjórnarflokkanna gerir svo að sínum?