fjárlög 2022.
Forseti. Í fyrsta lagi tel ég að Alþingi fari í raun ekki með fjárveitingavaldið. Stjórnarþingmennirnir afhenda ríkisstjórninni einfaldlega fjárveitingavaldið og kvitta bara undir og stimpla það sem kemur frá þeim svona alla jafna, fyrir utan nokkur atriði sem ráðherra virðist ekki vera treyst til að fjármagna og þau vilja bara gera það beint sjálf — hér eru 3,6 milljónir í eitthvert gæluverkefni hjá okkur, voða gaman. Varðandi þjóðarsjúkrahúsið höfum við ítrekað á undanförnu kjörtímabili fengið fulltrúa Landspítalans á fund fjárlaganefndar til að útskýra hvernig rekstrarvandinn liggur og samanborið við útskýringar heilbrigðisráðuneytis og fjármálaráðuneytis eru útskýringar Landspítalans einfaldlega langtum betri og langtum betur rökstuddar. Alveg rosalega miklu betur. Það liggur sérstaklega í því að (Forseti hringir.) spítalinn bendir á ákveðin atriði sem ráðuneytin geta einfaldlega ekki svarað, sem þau forðast að svara. Það leiðir að sjálfsögðu til þess að manni finnst eins og verið sé að fela eitthvað. Þá hlýtur það að vera rétt sem fulltrúar Landspítalans segja af því að þau geta einfaldlega ekki svarað þessari gagnrýni.