152. löggjafarþing — 15. fundur, 22. des. 2021.
fjárlög 2022.
1. mál
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir að við séum algerlega að óþörfu að fara með umræðu um fjárlög inn í nóttina. Það hlýtur að vera ósköp eðlilegt að eitthvað sé gert í þessum málum núna. Svo virðist vera sem forseti og 1. varaforseti séu forfallaðir, en samt virðist forseti fara með völdin þó að hann sé ekki á staðnum og sé veikur. Ég held að við ættum að gera kröfu um að hlé verði gert þangað til að í ljós kemur hvaða forseti hefur völdin hér í kvöld og hver getur tekið ákvarðanir.