152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[00:17]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Ætli hæstv. ráðherra komi hingað inn til að skamma okkur fyrir að vera letingjar og nenna ekki að tala fram á nótt? Ég velti því fyrir mér hvort hann geri það aftur. Það er ekki það sem við vorum að tala um í fundarstjórn áðan. Það er eðlileg krafa að framsögumenn nefndarálita fái ráðrúm að degi til, eins og alltaf hefur verið, til þess að flytja nefndarálit sín. Ykkar klúður er ekki á okkar ábyrgð. Við höfum ekkert á móti því að vera hér alveg fram á morgun og næsta dag o.s.frv. í almennri umræðu, en flutningur nefndarálita er ekki almenn umræða. Nefndarálit eru mikilvæg skýrsla, frásögn nefndarmanna um umsagnir gesta og rannsókn nefndarinnar, og það skiptir rosalega miklu máli að þingið allt sé með í því. Við biðjum aftur: Ekki gera framsögumönnum nefndarálita það að vera hér að nóttu til að greina frá jafn risastóru máli og þúsund milljarða — ætli það sé ekki rétt tala — fjárlögum ríkisins.