152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[00:43]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég var talsvert hissa þegar ég tók þátt í sams konar umræðu hér um fundarstjórn forseta fyrr í kvöld og ég hef ekki orðið neitt minna hissa, því að þá gerði ég að umtalsefni að það væri best að hæstv. ráðherrar héldu sig frá þessum samningaviðræðum og hélt að þeir hefðu áttað sig á því að þeir væru ekki að hjálpa til. En það virðist ekki vera því að formaður Sjálfstæðisflokksins heldur áfram á sömu braut, að kasta olíu á eld, leggur ekkert til málanna til að reyna að ná einhverri niðurstöðu, þvert á móti. Og það er greinilegt að þingflokksformenn stjórnarinnar hafa ekki umboð til eins eða neins. Hér er búið að segja í þessari pontu: Aldrei, aldrei. (Gripið fram í.) Ætla menn ekki að ljúka þinginu? Hafa menn ekki staðið í þinglokum áður? Hefur aldrei verið samið áður? Hafa menn ekki séð mælendaskrá rakna upp þegar samkomulag næst? Hafa menn bara ekkert verið á þingi? Ég skil þetta ekki.