152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[00:45]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Já, ég hlakka til að fá þetta minnisblað og sjá hvort maður geti ekki verið í sumarbústaðnum að tala hérna úr þingpúltinu og svona. En til að vera aðeins meira uppbyggilegur þá langar mig að leggja til að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fari og hvíli sig aðeins, vegna þess að hann er greinilega orðinn ansi æstur og vill ekki taka þátt í neinum samningum, samningum sem eru í raun voða einfaldir. Við erum að leggja það til að fjármagnið verði veitt til hluta sem þegar er búið að setja í lög. Einfaldur hlutur. Svo það sé alveg á hreinu hvað við erum að tala um þá er það niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu. Geðheilbrigði Íslendinga skiptir máli. Ég skora enn og aftur á þingflokksformenn að taka hér stutt hlé og ræða málin af alvöru og koma svo til baka með svör.