152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[01:36]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna og þakka fyrir hlý orð í garð okkar í meiri hluta nefndarinnar. Ég get bara tekið undir það, eins og ég sagði í andsvari mínu við hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, og þakka fyrir samstarfið í nefndinni sem hefur verið afskaplega gott. Þó að við séum ekki sammála um alla hluti þá er það bara eins og það er. En vinnan í nefndinni hefur verið góð.

Ég vil byrja á því að segja að ég tek undir orð í áliti hans um mikilvægi þess að við könnum möguleika á nýrri Breiðafjarðarferju. Ég held að það sé afskaplega mikilvægt mál og við vitum, þingmenn kjördæmisins, sem erum hér þrír af fjórum í þingsal, hvert mikilvægi þess er fyrir svæðið.

Eins tek ég undir varðandi hjúkrunarheimilin, það er mjög brýnt verkefni að við eflum þau og fjölgum rýmum um allt land.

Mig langaði hins vegar að spyrja aðeins út í húsnæðismálin og húsnæðisliðinn sem komið var inn á áðan. Ég ætla að spyrja hv. þingmann aðeins út í þau verkefni eða þær leiðir sem við höfum farið til að reyna að bregðast við þeim vanda sem er á þessum markaði. Það eru annars vegar hlutdeildarlánin, þar sem við erum búin að veita, held ég, 286 hlutdeildarlán. Í almennu íbúðunum, ef ég skil hv. þingmann rétt, þar sem verið er að óska eftir 3,5 milljörðum, hafa verið settir inn um (Forseti hringir.) 17,2 milljarðar frá 2016, um 2.900 íbúðir (Forseti hringir.) og uppbyggingin áætluð um 90 milljarðar. (Forseti hringir.) Og eins verkefnið Tryggð byggð. Mig langar að heyra hjá hv. þingmanni hvað honum finnst um þær aðgerðir sem nú þegar hefur verið ráðist í.