fjárlög 2022.
Forseti. Það sem hv. þingmaður talaði um síðast í sinni ræðu er einmitt það sem ég hefði áhuga á að vekja athygli á. Í nefndarvinnunni varð honum að orði að fjárlögin væru einmitt þessi lokaða bók, það væri ógagnsæi í fjárlögunum. Þetta er mjög skrýtið. Ég hef einmitt kvartað ítrekað yfir þessu á árum mínum í fjárlaganefnd þar sem fjárlögin eru fjárheimildirnar sem þingið samþykkir fyrir framkvæmdarvaldið til að fara eftir. Og ef maður reynir að fá einhverjar upplýsingar úr fjárlagafrumvarpinu, og meira að segja í fylgiriti með fjárlögum sem er aðeins nákvæmara, þá hefur maður í rauninni ekki hugmynd um af hverju þær eru þar sem þær eru. Maður hefur litla hugmynd um af hverju það þarf 600 milljónir í þetta og hitt verkefnið og að miklu leyti yfir höfuð hvað er verið að fjalla um í fjárlagafrumvarpinu. Það er ansi mikið af umfjöllun um efnahagsmálin, sem er gott og blessað og svoleiðis, en þegar kemur að því að samþykkja heildarfjárveitingu í einn málaflokk eða málefnasvið höfum við í rauninni ekki hugmynd um hvað við ætlum að samþykkja. Það er t.d. svo merkilegt varðandi breytingartillögu okkar í minni hlutanum að þar er breytingartillaga á málefnasviði örorku þar sem á að fara milljarður í að hækka atvinnuskerðingarhlutfallið og síðan á að greiða upp kjaragliðnunina. En þetta summast saman sem ein upphæð, 2,5 milljarðar, ekki sem 1 milljarður og 1,5 milljarðar, sem þýðir að þegar við ætlum að fara að greiða atkvæði um þessar tillögur í þingsal (Forseti hringir.) getum við ekki greitt atkvæði um það hvort í sínu lagi, merkilegt nokk því að kannski myndi meiri hlutinn (Forseti hringir.) vilja greiða atkvæði um annan hlutann en ekki hinn en það er ekki hægt af því að tölvan segir nei.