fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Varðandi lögbundin verkefni, sem sagt verkefni sett í ákveðnum lögum, eins og NPA-samninga, sem ber að sinna en fjármagnið er af skornum skammti, þá getur það þýtt að þeim lögbundnu verkefnum sé ekki sinnt lögum samkvæmt. En það er hluti af efnahagsstjórn ríkisins og það er ekki hægt að taka efnahagsstjórn ríkisins og setja hana inn í þessi lögbundnu verkefni. Hún verður að vera miðuð við fjárþörf hverju sinni. Þannig að ég get ekki sagt að önnur lög eigi að trompa fjárlögin. Það gengur alls ekki.
En mig langar að segja varðandi fjárlagafrumvarpið í heild, varðandi framsetninguna og annað slíkt, að það er mjög auðvelt að leysa þetta. Það er hægt að finna bara „best in class“ úti í heimi, fara til OECD, finna ríki og fá upplýsingar um hverjir séu að gera þetta með þeim hætti að mesta gagnsæið sé fyrir hendi. Fjárlög á Íslandi eru ekki stór. (Forseti hringir.) Það eru ríki sem eru miklu, miklu stærri en Ísland sem eru örugglega að gera þetta skynsamlega (Forseti hringir.) og með einföldum hætti. Og við höfum mikil tækifæri (Forseti hringir.) til að bæta þessa bók.