152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[01:54]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Mig langar aðeins að halda áfram með það. Ég er algerlega sammála þeirri nálgun sem hv. þingmaður hefur varðandi skipulagsvald sveitarfélaga og þá þætti, að við séum ekki með boðvald ríkisins í þeim efnum. En hvað finnst hv. þingmanni þá um ábyrgð sveitarfélaganna á íbúðamarkaði, eins og t.d. hér í höfuðborginni þar sem sumir hafa bent á að skortur á lóðum hafi hreinlega ýtt upp verði á íbúðarhúsnæði, sem veldur fólki líka þessum erfiðleikum?

Síðan langar mig til að nefna við hv. þingmann, af því að hann nefnir hér stjórnarmyndun og ráðherrakapalinn, að meiri hluti fjárlaganefndar leggur nú til í sínum tillögum að skera niður fjárheimildir, þá ekki síst til þess að rýma til og fá fjármuni til að nota í þessar breytingar á Stjórnarráðinu.