152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[02:54]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar í seinna andsvari aðeins að velta upp spurningum varðandi hagræna hvata í þágu grænna umskipta. Þar sýnist mér stundum að vanti skýrari brú á milli efnahags- og viðskiptanefndar, sem hv. þingmaður er í, og fjárlaganefndar sem á frumvarpið, sem við erum að ræða hér í dag, vegna þess að almennilegt kerfi, t.d. utan um kolefnisgjöld, þarf að hafa það sem er stundum kallað „bonus malus“-element. T.d. hvað varðar fólksbíla þá erum við með bonus-hlutann alveg bara upp í topp. Við erum að niðurgreiða og ívilna hreinorkubílum en það vantar malus-hlutann. Þetta skiptir miklu máli vegna þess að með því að smíða báðar hliðar kerfisins tryggjum við réttlátu umskiptin. (Forseti hringir.) Þá getum við notað t.d. kolefnisgjöld til þess að styðja fólk sem annars hefði ekki efni á að taka þátt í grænu umskiptunum, svo dæmi sé tekið.