152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[03:03]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður talaði um 69. gr. almannatryggingalaga og kjaragliðnun, sérstaklega hjá ellilífeyrisþegum og öryrkjum. Það er svo merkilegt að þær beiðnir sem hafa verið hjá þeim hópum um kaup og kjör eru í rauninni upphæðirnar eins og þær myndu vera ef lögunum hefði alltaf verið fylgt, bókstafi laganna, um hækkun samkvæmt launaþróun eða verðbólgu, aðallega launaþróun. Þess vegna er rosalega merkilegt að í þessu fjárlagafrumvarpi er viðurkennt vanmat á verðlagsþróun á þessu ári og bætt upp fyrir næsta ár. Það finnst mér rosalega merkilegur áfangi. Hvað þýðir það fyrir undanfarna tvo áratugi þar sem þetta var ekki gert almennt séð?