152. löggjafarþing — 15. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[03:07]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þarna komum við auðvitað að svolítið flóknu samspili embættismannakerfisins og stjórnmálanna. Vandamálið er kannski að einhverju leyti að það ríkir ekki gagnsæi um hvernig nákvæmlega svona viðmiðunartölur eru ákveðnar og það skapar líka tortryggni í þessum efnum. Svo ég taki sams konar dæmi varðandi bandorminn, þar er sérstaklega verið að breyta þessu viðmiði persónuafsláttar og þrepamarka í tekjuskattskerfinu og miðað er við framleiðnivöxt. Því er bara slegið föstu að framleiðnivöxtur hljóti að vera u.þ.b. 1%. Við fengjum út einhverja allt aðra tölu ef við myndum miða við aðeins lengra eða aðeins styttra tímabil. Þarna er auðvitað ákveðinn freistnivandi af því að það er alltaf þessi krafa um að ballansera bókhaldið. Þarna er ákveðinn freistnivandi, kannski bæði í stjórnmálunum og í embættismannakerfinu, að námunda allt niður á við einhvern veginn.