152. löggjafarþing — 16. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[10:40]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur. Já, það er magnað hve erfitt er að gera þetta. Hv. þingmaður nefndi sátt. Auðvitað er mjög æskilegt að geta náð sátt og það er mjög æskilegt að kerfið sé þannig að menn finni fyrir einhvers konar ávinningi af því að haga sér vel. Það er mjög mikilvægt. Ýmis kerfi eru til og hv. þingmaður nefndi írska kerfið sem er allrar athygli vert en ég held að það sé líka mikilvægt að við horfum á þetta þannig að við séum ekki endilega að horfa á það sem tekjuöflunartæki. Það er mjög mikilvægt að þessu sé stýrt þannig að það komi hlutlaust út, sé ekki tekjuaflandi í sjálfu sér fyrir ríkissjóð heldur komi fólki og fyrirtækjum til góða, beint og óbeint. Hv. þingmaður nefndi írska fyrirkomulagið, þar sem sátt ríkir um hærri gjöld vegna þess að fólk sér ávinninginn af því sem er verið að gera, sem er mjög mikilvægt vegna þess að við vitum að tilhneigingin er sú að okkur hættir svo mikið til að horfa á þessi mál út frá sjónarhóli einstaklingsins og því hversu veikburða hann er og að hann skipti engu máli í heildarsamhenginu. En auðvitað gerir margt smátt eitt stórt. Það eru gömul sannindi. Þess vegna er svo mikilvægt að allir finni tilganginn með því að vinna af einlægni og framsækni að því að leysa og greiða úr loftslagsvanda með því að draga úr mengun.