fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir greinargóða ræðu og það var svo sannarlega margt þar sem ég var sammála. Ég hjó eftir einu í ræðu hv. þingmanns og það var um hvernig við mörg brostum smá gleðibrosi þegar við sáum sumt í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en fórum svo að gráta þegar við sáum hverjar raunverulegar efndir voru í fjárlagafrumvarpi. Það virðist vera taktík hjá þessari ríkisstjórn að slá ryki í augun á fólki, að tala um fallegar aðgerðir sem síðan eru ekki fjármagnaðar. Við höfum talað um sálfræðiþjónustuna, við höfum talað um nýsköpunina, hvernig sett er í hana fjármagn núna en síðan á bara að skera hana algerlega við nögl á næstu árum þrátt fyrir fagrar yfirlýsingar stjórnarliða um að slíkar breytingar yrðu gerðar í 2. umr. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann, þar sem hann er aðeins hoknari af reynslu í gerð fjárlaga en sá sem hér talar, hvernig hann metur innsýn í raunverulega stefnu ríkisstjórnarinnar miðað við hvernig við lesum frumvarpið, ekki þá glimmersýn sem kynnt var á Kjarvalsstöðum, heldur raunverulegu sýnina og raunverulegu hlutina sem þessi ríkisstjórn virðist kannski ætla að gera á næstu fjórum árum.