152. löggjafarþing — 16. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[11:39]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Nú höfum við staðið hér og talað í rúman einn og hálfan tíma og bráðum kemur matarhlé. Nú hefur verið talað um það í forsætisnefnd að gera hér reglulega hlé á fundum til að lofta út af sóttvarnaástæðum. Mig langar að hvetja virðulegan forseta til að ákveða hvort við tökum ekki hlé og loftum út áður en við höldum áfram þessari umræðu.