152. löggjafarþing — 16. fundur,  22. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[12:04]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil óska hv. þm. Thomasi Möller til hamingju með glæsilega jómfrúrræðu. Orð hans um aðhald í ríkisrekstri eru sígild og tímabær núna þegar við erum í jafn kröppum dansi og raun ber vitni við, eins og oft er sagt, fordæmalausar aðstæður. Ég treysti því að hann taki höndum saman með öllum þingmönnunum í þessu þingi, þá sérstaklega þegar Viðreisn á í hlut, að fá þar rönd við reist.