fjárlög 2022.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég er hjartanlega sammála, auðvitað eigum við að gera miklu betur. Við getum gert miklu betur. En það sem ég var ekki síður að tala um í þessu samhengi, varðandi Evrópusambandið og það sem er að gerast þar, burt séð frá Evrópusambandinu sem einhverri einingu, er að þarna er stórt batterí sem hefur getu til að móta öfluga stefnu, regnhlíf, um svokallaðan grænan samfélagssáttmála. Þar undir er landbúnaðarstefnan sem er styrkjakerfi landbúnaðarins innan Evrópusambandsins. Þar undir er matvælastefna. Þar undir er stefna um líffræðilega fjölbreytni. Þetta eru þrjár lykilstoðir í þessum græna samfélagssáttmála til að ná fram árangri í öllum þessum geirum en alltaf fyrst og síðast með þarfir náttúrunnar í huga. Það er svo mikilvægt. Við gerum áætlanir hér. Síðustu tvö árin, ég segi það ríkisstjórninni til hróss, hefur mikið gerst í að búa til ramma, en þeir eru bara ekki tengdir. Við höfum gert landgræðsluáætlun í einu horni, skógræktaráætlun í öðru horni, samt í sama ráðuneytinu. Við höfum gert viðauka við landsskipulagsstefnu í sama ráðuneyti en líka ótengda. Við höfum gert matvælastefnu ótengda hinum áætlununum og við höfum gert landbúnaðarstefnu ótengda hinum áætlununum líka. Þetta skemmir fyrir því að við komumst hraðar í að ná sameiginlegum árangri. Þetta finnst mér vont.