fjárlög 2022.
Forseti. Hér er gerð tillaga um 2,5 milljarða kr. framlag, annars vegar 1 milljarð til að hækka frítekjumark atvinnutekna í samræmi við frítekjumark aldraðra og hins vegar 1,5 milljarða til að stöðva kjaragliðnun örorkulífeyris miðað við lífskjarasamninga. Þetta eru í rauninni tvær tillögur sem við greiðum atkvæði um en við getum ekki skipt henni upp. Það er dálítið vandræðalegt. Í þeim fræðilega heimi að kannski væri ríkisstjórnin sammála því að það ætti að stöðva kjaragliðnunina þá er ekki hægt að greiða atkvæði sérstaklega um þá tillögu. Það er mjög merkilegt. En svona er heimurinn sem við búum í og við þurfum að laga hann eins og við ætlum að laga kjaragliðnunina. Hérna er um að ræða ekki bara kjaragliðnun fyrir næsta ár heldur líka í rauninni uppsafnaða kjaragliðnun þessa árs. Það má í rauninni segja sem svo að öryrkjar séu að missa af lífskjarasamningum bæði ársins 2021 og 2022 ef þetta verður ekki samþykkt.