fjárlög 2022.
Frú forseti. Ég vil nýta tækifærið og þakka fjárlaganefnd fyrir að hafa tekið upp breytingartillögu mína um að bæta aftur inn framlagi til Samtakanna ‘78, sem hlýtur eiginlega að hafa verið handvömm af hálfu forsætisráðuneytis að félli niður nema fyrir þær sakir að þetta er annað árið í röð sem það gerist. Ég legg til að með þessa fjárheimild trygga í hendi gangi ráðuneytið til samninga við samtökin til lengri tíma en eins árs og biðjist afsökunar á því að þessi árlegi ósiður hafi verið tekinn upp og það vandi sig bara betur sem ráðuneyti sem vill alltaf monta sig af því að vera svo rosalega flinkt í hinsegin málum, vandi sig betur í því að koma fram við hagsmunasamtök hinsegin fólks af virðingu.