breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir gott samstarf í nefndinni. Ég kem hér upp vegna þess að mér finnst við aðeins þurfa að ræða um þau þungu viðvörunarorð sem bárust frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu gegn framlengingu Allir vinna-úrræðisins. Að mati ráðuneytisins er framlengingin til þess fallin að ýta undir þenslu. Hún raskar jafnræði milli atvinnugreina og grefur undan skilvirkni virðisaukaskattskerfisins. Hún kostar á áttunda milljarð króna á næsta ári og torveldar það verkefni að draga úr hallarekstri ríkissjóðs og halda aftur af verðbólgu. Svo bendir ráðuneytið líka á að ekki hafi verið sýnt fram á að úrræðið sporni gegn svartri atvinnustarfsemi eða stuðli að betri skattskilum. Það liggja ekki fyrir neinar greiningar á þessu. Svo mig langar bara að biðja hv. formann efnahags- og viðskiptanefndar um að útskýra að hvaða leyti meiri hluti nefndarinnar er ósammála þessum viðvörunarorðum, hvort skrifstofa skattamála í fjármálaráðuneytinu hafi rangt fyrir sér. Og svo vil ég líka spyrja hvers vegna meiri hluti nefndarinnar bregst ekki með neinum hætti við þessum ábendingum ráðuneytisins, hvers vegna meiri hluti nefndarinnar bregst ekki við þessum þungu og afgerandi viðvörunarorðum, af því við sjáum ekki oft svona lagað þar sem ráðuneyti er beinlínis að vara Alþingi við hagstjórnarmistökum. Hvers vegna er ekki einu sinni minnst á þessar viðvaranir í nefndaráliti meiri hlutans?