breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Það kom fram í áliti nefndarinnar, í framsögu minni hér áðan, að ég tel rétt að við skoðum þær ívilnanir sem verið hafa til bifreiða, og þá til tengiltvinnbifreiða, metanbíla og rafmagnsbíla. Það er alveg skýrt markmið ríkisstjórnarinnar að Ísland verði kolefnishlutlaust árið 2040 og við munum að mestu vera laus við jarðefnaeldsneyti. Það er háleitt markmið sem við viljum og ætlum okkur að ná. Hvernig við ætlum síðan að gera það — það verður að vanda mjög vel til verka. Við þurfum að skoða það mjög gaumgæfilega hvaða aðferð er best í því sambandi. Uppi eru þau sjónarmið að ekki eigi að beita ívilnunum til tengiltvinnbifreiða þar sem þar með sé verið að niðurgreiða bensín og dísilbíla að hluta. Það er aftur á móti hægt að setja þrengri skorður á þær bifreiðar þannig að CO2-gildi þeirra sem þær skila frá sér sé lægra. Þetta er ákveðið vandamál, sérstaklega þar sem við erum með gríðarlegan fjölda bílaleigubíla á Íslandi og það hefur reynst mjög erfitt að leigja hreina rafmagnsbíla. Ég hef áhyggjur af því að ef bílaleigurnar verða algerlega þannig meðan innviðirnir okkar eru ekki orðnir betri, þá verði það vandkvæðum bundið að dreifa ferðamönnum hringinn í kringum landið og þá fjær höfuðborgarsvæðinu, sem við viljum vitaskuld sjá.