breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Frú forseti. Ég þakka svarið. Mér þótti svarið alveg prýðilegt en það stangast á við allt sem stendur í nefndarálitinu og tillögu fjármálaráðuneytisins. Þannig að ég vona að hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar taki vel í breytingartillögu, sem mun væntanlega koma fram milli 2. og 3. umr., og færir þetta til betri vegar en nú er lagt upp með.
En þá langar mig til þess að fara yfir í mál er snúa að Allir vinna. Lagt er til í nefndaráliti meiri hlutans að hluti lausnarinnar falli niður nú eftir nokkra daga, strax um áramót, viðbótarhluti sem settur var inn sem sneri að endurbótum og viðhaldi frístundahúsnæðis og vinnu manna vegna heimilisaðstoðar og reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis. Inni í þessu held ég hafi líka verið eitthvað sem sneri að sveitarfélögum, þ.e. húsnæði í eigu sveitarfélaga, að það falli niður 30. júní 2022. Og síðan lækki almenni hluti þessa úr 100% í 60%, 31. ágúst 2022.
Er einhver skýring á bak við þennan flækjufót sem hér er verið að reyna að byggja inn í þetta, að vera með þrjár mismunandi dagsetningar? Og núna, þegar við horfum á að innleiddar hafa verið reglur sem gera það að verkum að fólk, sérstaklega á landsbyggðinni, gæti þurft að fara í meiri háttar aðgerð er snýr að skoðun bifreiða sinna og bílar kyrrsettir í meira mæli og annað þar fram eftir götunum, komu þau sjónarmið og þau vandamál eitthvað til umræðu hjá nefndinni varðandi það að framlengja það er snýr að endurgreiðslu viðhalds virðisauka vegna vinnu manna við bílaviðgerðir, málningu og réttingar? Þetta eru vandamál sem mér sýnist hafa orðið til algerlega við skrifborð bírókratanna hér heima og erlendis á undanförnum misserum.