152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[11:34]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Ég þakka hv. 8. þm. Norðvest. fyrir. Átakið Allir vinna var 60%, og var endurgreiðsluhlutinn hækkaður í 100% sem hluti af Covid-aðgerðum og til að bregðast við efnahagslegu áfalli sem varð vegna þess. Ráðuneytið lagði til að þetta átak myndi falla niður í 60% að öllu leyti um áramótin. Nefndin leggur til að milda með einhverjum hætti þá aðgerð, líka til þess að greinin geti þá aðlagað sig að því — það eru verkefni í gangi; það eru verkefni í gangi hjá sveitarfélögum, það eru verkefni í gangi víða hjá húsfélögum og annars staðar — þannig að þau verkefni geti klárast. Það varð niðurstaðan að endurgreiðsla vegna bifreiða falli með öllu niður um áramótin, enda hefur sú endurgreiðsla verið lægsti parturinn af þeim endurgreiðslum. Og svo verður öllu fram haldið 100% út júní, en þá, um þau mánaðamót, falla niður endurgreiðslur út af frístundahúsnæði og sveitarfélögum. Síðan verður allt komið niður í 60% aftur þann 1. september. Þetta var niðurstaða nefndarinnar til þess að milda áhrifin á iðnaðinn.