152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[12:05]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Háttvirtur þingheimur, bæði hér og heima. Ég heiti Tómas, kallaðar Tommi, og ég er eldri borgari. Ég vil nota tækifærið til að þakka síðasta ræðumanni fyrir skelegga ræðu. Mér dettur í hug orðatiltækið: Dropinn holar steininn. Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson hafa allt undanfarið kjörtímabil barist fyrir hagsmunum þeirra sem minna mega sín og ég fagna því að fleiri skuli komnir í lið með okkur varðandi það.

Ég vil bara í þessari stuttu andsvarsræðu minni benda á að við eldri borgarar erum 45.000 talsins og þar af eru 14.000, einn þriðji eldri borgara, sem þurfa að komast af með innan við 300.000 kr. á mánuði. Það eru þeir sem hefðu notið þess ef frítekjumark lífeyrisréttinda hefði verið hækkað. (Forseti hringir.) Ég held áfram síðar.