152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[12:07]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér láðist að geta þess áðan í þessari stuttu ræðu minni að síðast þegar ég kom í þennan ræðustól, á miðvikudaginn var, þá urðu mér á þau mistök að ég var í gallabuxum. Mér var bent á það góðfúslega að það tilheyrði ekki siðareglum Alþingis og ég biðst velvirðingar á því hér og nú og tilkynni það hér með að ég er kominn í ný föt. [Hlátur í þingsal.]