152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[12:11]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að taka hrósið til baka en við erum þá kannski ekki alveg á sömu blaðsíðu hvað þetta varðar. En af því ég kom því ekki að áðan þá langar mig aðeins til að minnast á punkt minni hlutans varðandi stuðning stjórnvalda við húsnæðisöryggi og framlög sveitarfélaga í þeim efnum. Þá langaði mig að hvetja ykkur til dáða því að þar væri nærtækara að líta til stærsta sveitarfélags landsins, sem flokkur hv. þm. Jóhanns Páls stýrir, og Reykjavíkurborg léti af langvarandi lóðaúthlutunarskorti og -svelti og legði þannig sitt af mörkum. Þar er hvatningar þörf í stað þess að taka undir linnulausar kvartanir frá sveitarfélaginu með hæsta mögulega útsvar en minnstu mögulegu grunnþjónustuna. Þar væri e.t.v. tilefni fyrir hv. þingmann til að vanda um fyrir sínu fólki um aðhald.