152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[12:12]
Horfa

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé fátt sem ég er jafn stoltur af eða er ánægðari með hjá mínum flokki en þá gríðarlegu uppbyggingu á félagslegu húsnæði sem hefur átt sér stað í Reykjavík á undanförnum árum undir forystu Dags B. Eggertssonar. Það sem helst vantar þar eru aukin stofnframlög inn í kerfið. Það hefur ekki staðið neitt sérstaklega á lóðaúthlutunum þar. Það er mýta sem hagsmunasamtök þreytast samt ekki á að halda á lofti. Við sjáum það bara í tölunum hvernig uppbygging félagslegs húsnæðis hefur svoleiðis rokið upp á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í Reykjavík. Við þurfum að halda áfram á þeirri braut. Ég held að það fari vel á því að ríkisvaldinu yrði beitt af meiri krafti til að stuðla að sams konar uppbyggingu alls staðar á landinu, ekki bara með hlutdeildarlánum og einhverju svoleiðis heldur með sterku almennu íbúðakerfi sem felur þá í sér endurreisn verkamannabústaðakerfisins.