152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[12:14]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætisframsögu. Ég vil aðeins koma inn á sóknargjöldin. Af því að hv. þingmaður nefndi þau sérstaklega þá vil ég benda á að gerður var samningur milli ríkis og kirkju 1987 um að ríkið tæki að sér innheimtu þessara gjalda og það er nú einu sinni þannig að ríkið verður að standa við sína samninga. Auk þess þá er það nú stjórnarskrárvarið að ríkisvaldið eigi að styðja og vernda þjóðkirkjuna þannig að það er fullkomlega eðlilegt að ríkið standi straum af þessari innheimtu. Það er einnig mjög mikilvægt að hafa í huga það mikla sálgæslu-, mannúðar- og velferðarstarf sem þjóðkirkjan stendur fyrir um allt land. Sérstaklega skipta sóknargjöldin verulega miklu máli á landsbyggðinni. En mig langaði að spyrja hv. þingmann að einu atriði sem kom fram í ræðu hans varðandi kolefnisgjaldið: Er hann þeirrar skoðunar að það eigi að hækka gjaldið enn frekar? Hversu mikið sér hann fyrir sér að gjaldið ætti að hækka?