breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Virðulegi forseti. Mig langar til þess að fara með gamla vísu sem seint verður of oft kveðin varðandi framlög úr ríkissjóði til starfsemi þjóðkirkjunnar og annarra trúar- og lífsskoðunarfélaga. Það er ekki ofsögum sagt að fjárútlát ríkissjóðs í þeirra þágu séu vægast sagt óhófleg enda hlaupa þau á milljörðum króna. Það sem hræðir mig að þessu sinni og veldur því að ég kem hingað upp til þess að röfla yfir þessu eina ferðina enn er samanburður við mál sem við, sem stundum göngum undir gælunafninu stjórnarandstaðan, reyndum að fá fram með takmörkuðum árangri í viðræðum við meiri hlutann í tengslum við fjárlög og fjármálaáætlun næsta árs sem varðar þátttöku Sjúkratrygginga í greiðslu sálfræðikostnaðar. Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar leggur til hækkun á framlögum vegna sóknargjalda þó að því sé reyndar haldið fram að ekki sé um hækkun að ræða heldur eingöngu verðlagshækkun frá því sem var samþykkt í lögum í fyrra. Þetta er rétt að vissu leyti en rangt að því leytinu til að hækkunin sem var ákveðin í nefnd í fyrra var til þess að bregðast við umkvörtunum þjóðkirkjunnar um að hún hefði borið skarðan hlut frá borði með vísan til lagaákvæðis um að framlög til sóknargjalda skuli miðast við breytingu á meðaltekjuskattsstofni einstaklinga. Í nefndaráliti meiri hlutans þar sem þessi hækkun er staðfest er hún dulbúin sem einföld verðlagshækkun.
Ég er ekki hingað komin til að þræta um krónur og aura þótt ég vilji gjarnan halda til haga undrun minni á því að enn séu framlög til þessara mála hækkuð þrátt fyrir háværa gagnrýni og ábendingar um óréttlætið sem í fyrirkomulaginu felst. Því er enn og aftur ranglega haldið fram að ríkissjóður gegni hlutverki einhvers konar innheimtustofnunar fyrir sóknargjöld, þ.e. félagsgjöld trúar- og lífsskoðunarfélaga, en það er auðvitað ekki svo að um innheimtu félagsgjalda fyrir hönd kirkjunnar eða annarra trúfélaga sé að ræða heldur kveða lögin fyrst og fremst á um ákveðna úthlutun úr ríkissjóði til trúfélaga á ári hverju. Sést þetta best af því að greitt er úr ríkissjóði fyrir hvern skráðan einstakling, 16 ára og eldri, óháð því hvort viðkomandi greiðir tekjuskatt eða ekki. Það er ekki um neins konar nefskatt að ræða eða innheimtu sem kemur á móti þessum framlögum. Á þetta hefur verið margoft bent en enn er vitleysunni haldið fram.
Einfaldasta lausnin á þessu atriði væri auðvitað sú að kirkjan færi að sjá um innheimtu sóknargjalda sjálf og önnur trúar- og lífsskoðunarfélög fyrir sitt leyti, en þess konar fyrirkomulagi myndi kirkjan væntanlega ekki vera hlynnt, enda veltir maður fyrir sér með breyttum tímum í dag hversu margir skráðra einstaklinga frá 16 ára aldri myndu með glöðu geði greiða um 20.000 kr. á ári hverju í félagsgjöld, sem er u.þ.b. það sem þeim yrði gert að greiða miðað við kröfu þjóðkirkjunnar. Það myndi eflaust einhver gera það en leiða má líkur að því að það yrði ekki sá fjöldi sem í dag myndar grundvöll þeirra framlaga sem kirkjan og önnur trúfélög fá úr ríkissjóði.
Það sem mig langar til að bera saman í dag eru þessar fjárhæðir en samkvæmt viðauka við fjárlögin núna þá hljóða framlög fyrir næsta ár til þessara mála upp á um 6 milljarða. Sú fjárhæð sem krafa var gerð um af hálfu minni hlutans hér á þingi í tengslum við greiðsluþátttöku ríkissjóðs í sálfræðikostnaði fyrir íbúa þessa lands var 900 milljónir. Á það gátu ríkisstjórnarflokkarnir ekki fallist en með herkjum og nokkurri hörku, verð ég að segja, tókst okkur að kría út að ég held um 250 milljónir þegar upp var staðið. Meiri hlutinn er sem sagt ekki reiðubúinn að greiða 900 milljónir til þess að framfylgja eigin lögum um að sálfræðikostnaður skuli falla undir sjúkratryggingar en er reiðubúinn að borga á ári hverju stöðugt hækkandi gjöld til trúar- og lífsskoðunarfélaga, m.a. með þeim rökum að þessi félög, einkum þjóðkirkjan, sinni einhvers konar sálfræðilegum, andlegum og félagslegum stuðningi við borgara þessa lands. Það gefur náttúrlega augaleið að þótt kirkjan telji sig vera opna öllum þá leitar fólk ekki þangað ef það telur sig ekki fá stuðning á réttum forsendum þar. Þarna er því um augljósa mismunun að ræða.
Það sem særir mig í rauninni mest er að þarna er verið að virða að vettugi löggjöf sem var samþykkt hér á þingi sem er í gildi en í staðinn eru samþykktar hækkanir á framlögum sem eiga að einhverju leyti að þjóna sama tilgangi, og deila má um hvort þau geri það eða ekki, með afskaplega vafasömum rökstuðningi og á vafasömum forsendum.