152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[15:12]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. 11. þm. Reykv. s. talar hér um sóknargjöldin og furðar sig á því að þau standi í rauninni í stað. Mig langar að benda hv. þingmanni á að uppsöfnuð skerðing sóknargjalda frá árinu 2009, í efnahagshruninu, þá hófst skerðing sóknargjalda, nálgast 20 milljarða. En á sama tíma, á þessum árafjölda, hafa opinberir aðilar í síauknum mæli beint sífellt fleirum til kirkjunnar í leit að hvers kyns aðstoð, hvort sem það er fjárhagsaðstoð, mataraðstoð, sálgæsla eða hvaðeina annað. Mér fannst vera léttvægt hér talað um starfsemi kirkjunnar því að það eru fáar stofnanir með jafn þéttriðið net starfsemi hringinn í kringum landið og sem sinna öllum, og þá meina ég öllum; það geta allir leitað til þjóðkirkju okkar Íslendinga, alveg sama hvaða trúarbrögð fólk aðhyllist. Það er mjög mikilvægt að við minnum okkur á að þjóðkirkja Íslands spyr aldrei um trúfélagsaðild hjá þeim sem koma og þiggja þjónustu hennar. Mér er (Forseti hringir.) það til efs að ríkið geti sinnt (Forseti hringir.) jafn mikilli þjónustu og þjóðkirkjan gerir með jafn hagkvæmum hætti og gert er.