breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir andsvarið og góða punkta. Það var alls ekki ætlun mín að gera lítið úr starfi kirkjunnar og ég mun seint gera það þó að ég sé hjartanlega ósammála því að hún standi öllum opin að öllu leyti, hvort sem það er hennar ákvörðun eða vegna afstöðu hennar eða einfaldlega vegna þess boðskapar sem liggur að baki þeirri þjónustu sem þar er veitt, hver sem ásetningur hvers og eins er.
Mig langar að velta upp þeirri spurningu hvort ástæðan fyrir því að fáar stofnanir eða aðrir aðilar veiti viðlíka þjónustu um allt land og þjóðkirkjan sé mögulega sú að þær stofnanir og þeir aðilar fá ekki milljarða á milljarða ofan úr fjárlögum á ári hverju. Þá langaði mig líka að bæta við hversu í rauninni vafasamt það er að þjónusta sem niðurgreidd er af ríkinu sé í nafni trúarbragða og þetta fyrirkomulag sem við höfum í dag krefst þess t.d. að ríkið haldi utan um skráningu á lífsskoðunum fólks, sem er vafasamt út af fyrir sig og minnir á þann hátt sem hafður er á í ríkjum sem við forðumst að líkja okkur við þar sem trúarbrögð fólks eru skráð á nafnskírteini.