152. löggjafarþing — 17. fundur,  27. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[15:19]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér tæpum við vissulega á mörgum atriðum sem krefjast mun lengri ræðutíma en tveggja mínútna í senn. Það eru margar stórar spurningar, m.a. hvort það sé tímaskekkja að á landinu þurfi að vera jafn margar kirkjur byggðar og raun ber vitni. Mér finnst það áhugavert. Ég hef heyrt þau rök áður að kirkjunni gangi illa að viðhalda þeim byggingum sem henni ber. Þá veltir maður fyrir sér hvort það séu ekki til aðrar leiðir til að fjármagna það.

Þetta vekur spurningar tengdar þeim tugum ef ekki hundruðum milljarða sem ríkið hefur í gegnum tíðina greitt fyrir land sem upphaflega var að sögn í eigu kirkjunnar, og það vekur furðu ef allir þessir fjármunir duga ekki til þess að mála kirkjur á landinu. Það er stærri spurning en svo að mér finnist henni vera svarað með þeim fjárhæðum sem veittar er í gegnum sóknargjöld eða önnur framlög ríkisins til kirkjunnar, hvers vegna þetta er staðan. Kannski væri rétt að gera úttekt á því hvers vegna þessum fjármunum er svona varið. Við erum að tala um 6 milljarða u.þ.b., þegar ríkið treystir sér ekki til að greiða 900.000 til þess að standa við eigin lagaboð um niðurgreiðslu sálfræðikostnaðar.