152. löggjafarþing — 18. fundur,  28. des. 2021.

skattar og gjöld.

4. mál
[12:14]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Flokkur fólksins styður heils hugar breytinguna á þessari grein. Ég er hér með frumvarp til laga frá hv. þm. Jakobi Frímanni Magnússyni og Flokki fólksins í heild sinni einmitt um þessar breytingar, að fella 100% niður virðisaukaskatt á loftförum og skipum. Það er greinilegt að ríkisstjórnin hefur séð ljósið hjá okkur í stjórnarandstöðunni og ákveðið að taka þetta upp í frumvarpið og samþykkja að þetta þurfi að vera með, að það séu ekki bara ökutæki á landi heldur bæði í lofti og á sjó sem fái ívilnanir ef notað er rafmagn.