152. löggjafarþing — 18. fundur,  28. des. 2021.

kosningalög.

189. mál
[12:42]
Horfa

Lenya Rún Taha Karim (P):

Herra forseti. Hér er verið að blanda saman tveimur lagabálkum rétt fyrir áramót þannig að íbúakosningarnar verði framkvæmanlegar. Ég sé ekki hvernig það er réttlætanlegt að setja Alþingi í þá stöðu að þurfa að skítamixa lög til að halda íbúakosningar. Við höfum séð á síðustu vikum og mánuðum hvað umgjörð um kosningar getur skipt miklu máli fyrir trú fólks á þær og lýðræðið sjálft og niðurstöðurnar sem þær skila okkur. Ef atburðarás síðustu mánaða hefur kennt þingmönnum eitthvað þá er það að við höfum þegar of mikla aðkomu að kosningum og samþykkt kosningaúrslita. En nú er ég bara að velta fyrir mér vinnubrögðum Alþingis. Ég skil ekki af hverju þetta frumvarp er ekki komið nú þegar um hvernig framkvæma skuli íbúakosningar. Ísland á skilið vönduð kosningalög en ekki reddingu á síðustu mínútu í miðju kapphlaupi við afgreiðslu fjárlaga rétt fyrir áramót.