fjárlög 2022.
Forseti. Ég þakka hv. formanni fjárlaganefndar fyrir svarið. Mig langaði til að fylgja þessu eftir og spyrja hv. formann hvar hún telur þessa 2 milljarða muni vera að finna á rekstrarreikningi Landspítalans næstu árin. Nú liggur fyrir að Landspítalinn og ríkissjóður hafa gert samning sín á milli um að ef Landspítalinn skilar hallalausum rekstri þá falli niður fyrri skuldir spítalans við ríkissjóð. Ef við sjáum 2 milljarða hlaðast upp á þessu ári í ljósi óhjákvæmilegs rekstrargats, sem virðist ekki hafa verið tilfallandi útreikningur, hverjar verða afleiðingarnar á rekstur Landspítalans að öðru jöfnu? Telur formaður hv. fjárlaganefndar að hægt sé að finna þessa 2 milljarða í sparnaði á Landspítalanum?