fjárlög 2022.
Virðulegi forseti. Ég er alveg sannfærð um það að starfsfólkið sem vinnur á Landspítalanum og stjórnendur hans munu leggja sig fram um, eins og þau hafa gert, að hagræða í sínum rekstri. Ég geri ekki ráð fyrir því að spítalinn verði krafinn um 2 milljarða niðurskurð eða eitthvað slíkt ef hv. þingmaður er að ýja að því. En ég held að það megi gera betur mjög víða í rekstrinum og tel að hæstv. heilbrigðisráðherra sé í færum til þess að aðstoða spítalann ef á þarf að halda eins og við höfum verið að gera í faraldrinum en líka til að hann geti haldið áfram að starfa eins og við viljum að hann starfi þegar faraldrinum vonandi lýkur, sem við vonum að gerist nú sem fyrst. En við erum ekki að gera ráð fyrir því að spítalinn þurfi að greiða niður gamla hallann. Rætt hefur verið í nefndinni að lengt verði í ef þess þykir þurfa, ekki síst vegna þess ástands sem við höfum búið við í tvö ár.